
Umhleðsluaðstaða Sorpstöðvar Suðurlands að Víkurheið 4 Selfossi hefur verið starfrækt síðan um miðjan júní.
Opnunartími umhleðslustöðvarinnar er virka daga frá 8:00 til 11:30 og frá 13:00 til 16:00. Tekið er við heimilissorpi, grófum úrgangi, lituðu timbri og hreinu timbri.
Starfsmenn taka á móti förmum inn í stöðina og leiðbeina með flokkun og losun.
Gjaldskrá:
Flokkur 101 Blandaður úrgangur - Heimilissorp. 18,20 kr/kg
Flokkur 250 Grófur úrgangur 22,60 kr/kg
Flokkur 301 Timbur – málað 13,90 kr/kg
Flokkur 302 Timbur – hreint 7,90 kr/kg
Innifalið í gjaldi er : Vsk, umhleðsla, flutningur og móttökugjöld Sorpu.
Samþykkt á 191. stjórnarfundi SOS, dags. 29. júní 2010
Tilgangur og hlutverk umhleðslustöðvarinnar er að taka á móti þyngstu úrgangsflokkunum sem flytja þarf til Sorpu í eyðingu og endurvinnslu. Í umhleðslustöðinni er rúmfrekur úrgangur brotinn saman og margir minni úrgangsfarmar sameinaðir í stærri farm, sem leiðir til minni aksturs og minni kostnaðar.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá Sorpstöð Suðurlands síma 480 8230 eða http://www.sorpstodsudurlands.is/
Síminn hjá umsjónarmanni umhleðslustöðvarinnar í síma 856 4500 og á gámasvæði Árborgar 482 2510.