a) Að annast förgun sorps fyrir aðildarsveitarfélög og fyrirtæki sem þar starfa.
b) Að kappkosta að starfseminni sé ávallt hagað þannig að hún uppfylli ákvæði laga, reglugerða og starfsleyfis um förgun sorps.
c) Að gæta ávallt ítrustu hagkvæmni við reksturinn án þess að það rýri gæði starfseminnar.
d) Að styrkja árlega eiginfjárstöðu byggðasamlagsins.
e) Að framkvæma gjaldskrárstefnu með þeim hætti að sveitarfélög og aðrir viðskiptaaðilar á Suðurlandi njóti hagkvæms reksturs.
f) Að stuðla að þróun hagkvæmrar sorphirðu á þann hátt að flokkun og endurvinnsla aukist samfara minnkun þess sorps sem til förgunar fer.
g) Að haga starfseminni þannig að hún verði ávallt í fararbroddi og sátt við umhverfið.
Leiðir að markmiðum:
Leið að markmiði a)
Að hafa ávallt tiltækar lausnir, s.s. urðunarsvæði með starfleyfi, til förgunar sorps fyrir aðildarsveitarfélög.
Leið að markmiði b)
Starfsmenn hafi nauðsynlega þekkingu á þeim lögum, reglugerðum og starfsleyfi sem um starfsemina gilda. Fyrirtækið viðhaldi góðu sambandi við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, Hollustuvernd ríkisins og Umhverfisráðuneyti og leita þeirrar ráðgjafar sem nauðsynleg er svo starfsemi á vegum Sorpstöðvarinnar verði til fyrirmyndar og geri ávallt viðeigandi ráðstafanir ef athugasemdir frá þessum aðilum berast um að eitthvað megi betur fara í starfseminni. Einnig að þjálfa og viðhalda þekkingu starfsmanna á því viðfangsefni sem þeir sinna auk þess sem markviss upplýsingaskráning eigi sér stað um starfsemi stöðvarinnar.
Leið að markmiði c)
Framkvæma fjármálastjórnunina m.a. með vönduðum fjárhagsáætlunum. Gera árlega nákvæma fjárhagsáætlun til eins árs og rammaáætlun til þriggja ára. Fjárhagsáætlanir skulu taka mið af þeim ströngu kröfum sem unnið er eftir og miða við óvissuþætti sem upp kunna að koma í starfsemi hvers árs. Beita þeim mannafla og tækjakosti sem nauðsynlegur er svo full hagkvæmni náist m.v. aðstæður hverju sinni.
Leið að markmiði d)
Við áætlunargerð skal miða við að eigið fé aukist þannig að fyrstu árin verði skuldir greiddar niður og síðan verði byggður upp sjóður til að mæta fjárfestingum seinni ára, hvað varðar endurnýjun tækjakosts, til frágangs og eftirlits eftir lokun urðunarstaðar og vegna stofnframkvæmda framtíðarinnar á nýjum sorpförgunarsvæðum.
Leið að markmiði e)
Reglulega skal bera saman raunkostnað og gjaldskrártekjur á grundvelli fjárhagsmarkmiða Sorpstöðvarinnar. Tryggja skal með gjaldskrá að fyrirtæki og viðskiptasveitarfélög á Suðurlandi greiði sannarlegan förgunarkostnað með tilheyrandi stofnkostnaðarframlagi. Sama gildir um framlög aðildarsveitarfélaganna.
Leið að markmiði f)
Með upplýsingum, hvatningu, uppbyggingu gjaldskrár og aðstoð við áætlana- og samningagerð getur Sorpstöðin stuðlað að aukinni flokkun sorps á Suðurlandi og endurvinnslu þess eftir atvikum. Á vegum Sorpstöðvarinnar skal, ef fjárhagslegar aðstæður leyfa, starfa umhverfisfræðingur sem sinnir ráðgjöf á þessu sviði, svo og almennri ráðgjöf um umhverfismál til sveitarfélaga, fyrirtækja og almennings.
Leið að markmiði g)
Stjórn og starfsmenn Sorpstöðvarinnar skulu ávallt tryggja að sú starfsemi sem þessir aðilar bera ábyrgð á verði framkvæmd á sem snyrtilegastan hátt. Allri sjónmengun sem og annarri mengun frá urðunarsvæði stöðvarinnar skal haldið í lágmarki. Reglubundin gróðursetning og fegrun umhverfisins skal fara fram á vegnum stöðvarinnar. Samskiptum við nágranna skal viðhaldið eins vinsamlegum og kostur er. (Ef menn verða fyrir sannarlegu tjóni vegna starfseminnar skal það bætt.) Almennt skal leitast við að ímynd Sorpstöðvar Suðurlands bs. verði sem best og í því sambandi hefur stjórnin heimild,( þegar fjárhagur stöðvarinnar hefur styrkst enn frekar), til að ráðstafa fé til umhverfismála sem tengjast með beinum eða óbeinum hætti samspili starfsemi stöðvarinnar og umhverfisins.
Samþykkt á aðalfundi Sorpstöðvar Suðurlands 7. mars 2000.