Sorpstöð Suðurlands bs.
Byggðasamlagið Sorpstöð Suðurlands er í eigu 13 sveitarfélaga í Árnes- og Rangárvallasýslum og var stofnað 1981. Hlutverk stöðvarinnar er að annast sorpmóttöku og sorpförgun fyrir aðildarsveitarfélög og fyrirtæki á svæðinu. Sveitarfélögin hvert um sig sjá síðan um rekstur gámasvæða og sorphirðu.

Markmið Sorpstöðvar Suðurlands eru meðal annars:
- Að stuðla að þróun hagkvæmrar sorphirðu á þann hátt að flokkun og endurvinnsla aukist samfara minnkun þess sorps sem til förgunar fer eins og kostur er hverju sinni.
- Að haga starfseminni þannig að hún verði ávallt í sátt við umhverfið.

Urðunarsvæði
Urðun úrgangs fer fram í landi Kirkjuferjuhjáleigu í Ölfusi, en þar var nýr urðunarstaður tekinn í notkun um mitt ár 1995 og er starfsemin þar rekin samkvæmt sérstöku starfsleyfi Umhverfisstofnunar (sjá ust.is). Á vegum Sorpstöðvarinnar í Kirkjuferjuhjáleigu fer eingöngu fram urðun á sorpi. Allt sorp sem inn á svæðið kemur er vigtað og greiða viðskiptavinir stöðvarinnar, sem fyrst og fremst eru sveitarfélögin auk nokkurra fyrirtækja, í samræmi við magn og tegund úrgangs en gjaldskrá var sett um leið og vigtun hófst í byrjun árs 1996. Engin almenn umferð er leyfð inn á svæðið. Almenningur verður að fara með rusl, sem ekki er sótt heim, á gámasvæðin eða í staka gáma sem sveitarfélögin hafa komið fyrir víðs vegar. Móttekið sorp árið 2003 var 16.688 tonn. Þar af komu tæplega 13.000 tonn frá sveitarfélögunum. Strangt eftirlit er með starfseminni af hálfu Ust og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Sigvatn af urðunarsvæðinu er leitt með frárennsli í gegnum sérstök hreinsimannvirki þannig að ekki valdi tjóni fyrir náttúruna. Sigvatnið er mælt og efnagreint og fylgst með því að efni séu innan tilskilinna marka. Við daglega starfssemi er einnig vel fylgst með að önnur ákvæði starfsleyfisins séu haldin svo sem að spilliefni fari ekki til urðunar, fuglum og meindýrum sé haldið í skefjum, vinnusvæði sé hulið í lok hvers dags, að lykt og önnur óþægindi séu í lágmarki. Mikil áhersla hefur verið lögð á það af hálfu Sorpstöðvarinnar að umhverfið sé sem snyrtilegast og umgengni góð.

Umhverfisráðgjöf og fræðsla
Á vegum Sorpstöðvarinnar starfar umhverfisráðgjafi sem sinnir margvíslegri umhverfisráðgjöf til sveitarfélaga. M. a. vinnur fyrirtækið nú með aðildarsveitarfélögum að stefnumörkum í umhverfisstjórnun, sem nær til skipulags sorphirðu, flokkunar og förgunar úrgangs á starfssvæðinu. Jafnframt hefur fyrirtækið staðið fyrir margvíslegri kynningu með auglýsingum, útgáfu bæklinga og heimasíðu.

Nánari upplýsingar um starfsemina
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.sudurland.is/sorpstod og einnig má senda fyrirspurnir á tölvupóstfangið sorpstod@sudurland.is

Sorpstöð Suðurlands bs. · Austurvegi 56 · 800 Selfoss
Sími 480 8230 · Fax 480 8201 · Netfang sorpstod@sudurland.is

Fara á forsíðu